Velferðarráðuneytið og Reykjavíkurborg hafa lýst yfir vilja sínum til að fjölga hjúkrunarrýmum og efla þjónustu við aldraða í Reykjavík á árunum 2013-2020. Samkomulag þess efnis var undirritað í síðustu viku af velferðarráðherra, Guðbjarti Hannessyni, Degi B. Eggertssyni staðgengli borgarstjóra og Guðmundi Hallvarðssyni, formanni Sjómannadagsráðs.
Í ljósi hlutfallslegrar fjölgunar aldraðra á komandi árum mun þörf fyrir hjúkrunarrými í Reykjavík aukast sem og eftirspurn eftir þjónustu í heimahús. Mikilvægt er að undirbúa vel þá uppbyggingu og þjónustu sem nauðsynleg er í málefnum aldraðra í Reykjavík.
Með yfirlýsingunni er lýst yfir vilja til að reisa 88 rýma hjúkrunarheimili við Sléttuveg. Gerður verður samstarfssamningur milli Reykjavíkurborgar, velferðarráðuneytis og Sjómannadagsráðs um starfsemi hjúkrunarheimilisins áður en framkvæmdir hefjast vorið 2014. Reykjavíkurborg og Sjómannadagsráð hafa áður undirritað þjónustusamnings vegna rekstrar þjónustukjarna fyrir eldri borgara við Sléttuveg og leigu á 20 þjónustuíbúðum í þjónustuíbúðakjarna Hrafnistu þar.
Í Seljahlíð hefur verið í undirbúningi tilraunaverkefni á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í samvinnu við velferðarráðuneytið en í því felst nýr valkostur fyrir aldraða í þjónustu- og búsetumálum. Í stað þess að íbúi flytji á hjúkrunardeild frá þjónustuíbúð koma til greiðslur vegna umönnunar frá ríkinu en þannig mun þjónustan fylgja einstaklingnum og fullt sjálfstæði einstaklinga verður tryggt. Þjónustuíbúð getur þannig orðið að hjúkrunarrými ef þörf er á án þess að viðkomandi þurfi að flytja.
Þá felst í yfirlýsingunni að rekin verði dagdeild fyrir heilabilaða í Fróðengi, nýrri þjónustumiðstöð sem Reykjavíkurborg byggir í samvinnu við Eir.
Reykjavíkurborg og velferðarráðuneytið lýsa einnig yfir vilja til að fara í samstarf um öflugri heimahjúkrun svo að mögulegt sé að þjónusta fleiri heima. Reykjavíkurborg tók við rekstri heimahjúkrunar árið 2009 samkvæmt þjónustusamningi við ríki og hefur styrking þjónustunnar gengið vel. Er með auknu samstarfi stefnt að margvíslegri frekari þjónustueflingu til hagsbóta fyrir íbúa í heimahúsum.
Samhliða ofangreindu munu velferðarráðuneytið og Reykjavíkurborg hafa forgöngu um skipan starfshóps sem taki til starfa á árinu með þátttöku háskólasamfélagsins. Starfshópnum er ætlað að meta þjóðfélagsleg áhrif fjölgunar aldraðra og gera tillögur að viðbrögðum, s.s. áætlun um þörf fyrir uppbyggingu hjúkrunarrýma, eflingar þjónustu í heimahúsum, sveigjanlegum dagþjálfunarúrræðum og þjónustuíbúðum/öryggisíbúðum fram til ársins 2020.
Viljayfirlýsingin sem undirrituð var