Vígsla skáksetta í Árbæjarlaug

Laugardaginn næstkomandi, þann 26. janúar, verða skáksett vígð í Árbæjarlaug. Tilefnið er Skákdagur Íslands, afmælisdagur Friðriks Ólafssonar. Laugin fylgir þá í kjölfar annarra sundlauga sem hafa boðið gestum upp á skákiðkun.



Skákkennsla hefur aukist í Árbænum í vetur og er nú kennd skák í flestum skólanna, og hefur Ársafn boðið upp á skákæfingar.



Vígsla skáksettanna fer fram klukkan 12.00 með skák Veroniku Steinunnar Magnúsdóttur og Doniku Kolica sem hafa báðar teflt með stúlknalandsliði Íslands í skák. Að lokinni skák stelpnanna munu þær tefla við gesti.



Skáksettin eru samstarfsverkefni Skákakademíunnar og Árbæjarlaugar.



Allir eru velkomnir!