Viðurkenning fyrir ríka tjáningu á íslensku

Skóli og frístund

""

Hátt í eitt hundrað reykvískir grunnskólanemar tóku í dag við Íslenskuverðlaunum unga fólksins í Bókmenntaborginni Reykjavík. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, afhenti verðlaunin en hún er verndari þeirra. 

Það var hátíðleg stund þegar íslenskuverðlaunin voru afhent í Norðurljósasal Hörpu þar sem saman voru komnir stoltir verðlaunahafar, foreldrar, afar og ömmur. Í tilefni dagsins var salurinn lýstur með íslensku fánalitunum. 



Grunnskólanemarnir sem tóku  við verðlaunum úr hendi Vigdísar að þessu sinni hafa m.a. sýnt hugmyndaauðgi, skemmtileg stílbrögð og frjó efnistök í ritun og munnlegri tjáningu. Meðal verðlaunahafa voru líka nemendur sem hafa með elju og einbeitni náð framúrskarandi árangri í íslensku sem öðru tungumáli.

Frú Vigdís Finnbogadóttir minnti á það í ávarpi sínu hvað íslensk þjóð ætti afmælisbarni dagsins, Jónasi Hallgrímssyni, mikið að þakka, ekki síst fyrir nýorðasmíði, og brýndi hún unga sem aldna til að varast fljótmælgina og leggja rækt við skýrmælgi og fallegt mál. Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, minnti á þau góðu tíðindi að nemendur af báðum kynjum í grunnskólum borgarinnar sýna merkjanlega meiri áhuga á lestri en í öðrum sveitarfélögum og að nýafstaðin Lestrarhátíð hefði jafnframt skilað sér í auknum yndislestri, s.s. í Austurbæjarskóla.  

Við verðlaunaathöfnina flutti hornkvartett úr Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts nokkur lög, svo og yngri sveit Tónlistarskólans í Grafarvogi. Kynnir var Margrét Kristín Blöndal. 

Þetta er í sjöunda sinn að íslenskuverðlaunin eru veitt. Handhafar þeirra eru á aldrinum 8- 15 ára; ljóðskáld, sögusmiðir, leikritaskáld, ræðuskörungar og tvítyngdir lestrar- og námshestar með lifandi áhuga á íslensku máli. Allir verðlaunahafar fengu til eignar veglegan verðlaunagrip, Þröstinn góða, sem hannaður er af Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur.

Markmið íslenskuverðlaunanna er að hvetja nemendur til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs og vekja þau til vitundar um auðinn í íslenskri tungu.

Sjá yfirlit yfir handhafa íslenskuverðlauna unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík árið 2013