Viðburðarík helgi í Viðey

Umhverfi Menning og listir

""

Kvennahlaup ÍSÍ í Viðey verður laugardaginn 8.júní kl. 10.00 - 12.00. Viðey tekur þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ í fjórða sinn í sumar. Það er sérlega notalegt að hlaupa í Viðey; sjávarselta, fuglasöngur, gras, mold og fögur náttúra – og það í fimm mínútna siglingu frá skarkala borgarinnar.

Siglt er frá Skarfabakka kl. 10:00 og hefst hlaupið frá Viðeyjarstofu kl. 10:30. Forskráning verður 7. - 8. júní í miðasölu Eldingar á Skarfabakka við Sundahöfn. Þáttökugjald fyrir fullorðna eru 2000 krónur en börn yngri en 12 ára greiða 1500 krónur. Innifalið er bolur, verðlaunapeningur og ferjan.

Á laugardaginn verður einnig haldið námskeið í hugleiðslu og slökun í Viðey kl. 13:00-15.00 undir handleiðslu Arnbjargar Kristínar Konráðsdóttur og seiðandi tónum Gong í friðsælli náttúru Viðeyjar. Ef  veðrið leikur ekki við gesti verður hugleiðslan inni í Gamla skólahúsinu. Þátttakendur greiða 2000 krónur fyrir námskeiðið auk ferjugjalds sem eru 1100 krónur fyrir fullorðna og 550 krónur fyrir börn 7-15 ára. Ferjan siglir til Viðeyjar bæði frá Reykjavíkurhöfn kl. 12:00 og frá Skarfabakka kl. 12:15.

Hægt er að enda daginn með því að fá sér létta hressingu í Viðeyjarstofu en allar nánari upplýsingar um viðburði í Viðey má finna á:

www.videy.com.

https://www.facebook.com/videyreykjavik.