Viðbót vegna innköllunar á Findus Lasagne

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni:  Viðbótarupplýsingar við fréttatilkynningu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur nr. 4/2013 vegna innköllunar og sölustöðvunar á Findus Lasagne, sem fyrirtækið Eggert Kristjánssonar hf., í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, gerði í varúðarskyni vegna möguleika á því að varan innihéldi hrossakjöt.

Upplýsingar frá Findus -  Svíþjóð vegna Findus vara á Íslandi

Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur hafa nú  borist upplýsingar frá Findus í Svíþjóð í gegnum  heildverslun Eggert Kristjánssyni hf., um að Findus vörur, sem seldar hafa verið á Íslandi, hafi hvorki verið framleiddar af fyrirtækinu Comigel í Lúxemborg né innihaldi neinar kjötafurðir frá því fyrirtæki. Það hrossakjöt sem fannst í Findus vörum í Evrópu hefur verið rakið til Comigel.

Findus vörur sem seldar hafa verið á Íslandi eru því ekki á neinn hátt tengdar hrossakjötsmálinu svokallaða í Evrópu.