Í dag er dagur gegn einelti og þá fá öll börn í leik- og grunnskólum Reykjavíkur endurskinsmerki að gjöf. Jón Gnarr borgarstjóri heimsótti nemendur í Réttarholtsskóla í tilefni dagsins þar sem hann ræddi við þá um ábyrgð og hvernig við getum í sameiningu ræktað vinsemd og upprætt einelti.
Í dag, 8. nóvember, er dagur gegn einelti og þá fá öll börn í leik- og grunnskólum Reykjavíkur endurskinsmerki að gjöf. Á því er merki verkefnisins Vinsamlegt samfélag og áletrunin: Við berum öll ábyrgð sem verður slagorð dagsins.
Jón Gnarr borgarstjóri heimsótti í tilefni dagsins nemendur í Réttarholtsskóla þar sem hann ræddi við þá um ábyrgð og hvernig við getum í sameiningu ræktað vinsemd og upprætt einelti. „Við berum öll ábyrgð bæði í skólanum og samfélaginu. Ef við berum ekki ábyrgð sjálf þarf einhver annar að gera það fyrir okkur og það er ekki sanngjarnt. Ábyrgð er einfaldlega hluti af því að vera til,“ sagði Jón Gnarr meðal annars. Þá ræddi hann ábyrgð fjölmiðla og birtingarmynd eineltis á netinu og hvatti nemendur til að ræða um einelti og láta vita ef þeir yrðu varir við einelti eða yrðu fyrir því sjálfir.
Með áletruninni Við berum öll ábyrgð er vakin athygli á því að það er samstarfsverkefni að byggja upp og viðhalda samfélagi sem tryggir öllum börnum umhverfi þar sem þau geta lifað og starfað án eineltis og annars ofbeldis. Að því samstarfi stendur allt starfsfólk skóla- og frístundasviðs, foreldrar, börn og aðrir í samfélaginu, svo sem fjölmiðlar.
Vinsamlegt samfélag er þverfaglegt verkefni á skóla- og frístundasviði sem nær til allra starfsstaða þess. Í tengslum við verkefnið hefur verið útbúinn gátlisti um forvarnir, inngrip og eftirfylgd í eineltismálum. Einnig verður einblöðungi dreift á starfsstaði sviðsins þar sem tíundað er hvernig hver og einn getur lagt sitt af mörkum til að sérhver vinnustaður barna og unglinga sé vinsamlegt samfélag.