Vesturgarður safnar skrefum

Umhverfi

""

Föstudaginn 11. janúar fékk Vesturgarður viðurkenningu fyrir skref 2 í grænu skrefunum. Fyrsta viðurkenningin þ.e. fyrir skref eitt var veitt í byrjun október sl. þannig að það má segja að það sé mikill hugur í starfsmönnum Vesturgarðs. Fyrir þá sem ekki vita eru markmiðið með grænu skrefunum eftirfarandi:

  • Gera starfssemi Reykjavíkurborgar umhverfisvænni
  • Auka vellíðan starfsmanna og bæta starfsumhverfi þeirra
  • Draga úr kostnaði í rekstri Reykjavíkurborgar
  • Innleiða áherslur í umhverfismálum sem þegar hafa verið samþykktar
  • Vinnustaðir fái viðurkenningu fyrir metnað sinn í umhverfismálum
  • Vinnustaðir borgarinnar geti innleitt aðgerðir á mismunandi hátt eftir umfangi og eðli starfsseminnar
  • Aðgerðir Reykjavíkurborgar í umhverfismálum séu sýnilegar
  • Reykjavíkurborg verði fyrirmynd annarra í umhverfismálum

Starfsmenn eru staðráðnir í að halda áfram og eru nú þegar farnir að huga að næsta skrefi.

Hér má sjá glaða starfsmenn með viðurkenninguna.