Verslunin Geysir hlýtur óvenjuleg verðlaun fyrir fegursta jólagluggann
Mannlíf Menning og listir
Jón Gnarr, borgarstjóri, veitti verslunareiganda verslunarinnar Geysis við Skólavörðustíg óvenjuleg verðlaun fyrir fegursta jólagluggann fyrir þessi jól að mati dómnefndar á vegum Reykjavíkurborgar. Verðlaunin eru - þjónusta Jóns Gnarr, borgarstjóra í eina klukkustund.
Reykjavíkurborg og Miðborgin okkar efndu til samkeppni meðal rekstraraðila í miðborginni um fegursta jólagluggann. Jón Gnarr afhenti verðlaunin í beinni útsendingu í þættinum Virkum morgnum á Rás 2.
Fallegasti jólaglugginn í miðbæ Reykjavíkur fyrir þessi jól er hjá versluninni Geysi. Af því tilefni var verslunareigandinn heiðraður sérstaklega í dag og hlaut viðurkenningu frá Reykjavíkurborg og Miðborginni okkar.
Viðurkenningar fyrir fallegustu jólaútstillingarnar í miðborginn hafa verið veittar í mörg ár. Tilgangur verðlaunanna er að vera hvatning til kaupmanna um að huga vel að andliti verslana sinna, gluggunum, og færa um leið hátíðarblæ jóla og áramóta yfir miðborgina, því ásýnd verslana og húsa í miðborginni er einn veigamesti þátturinn í útliti miðborgarinnar.
CNN hefur valið tíu jólalegustu staði í heiminum og er Reykjavík einn þeirra. Þar er fjallað um séreinkenni Íslendinga yfir jólahátíðina.
Fram kemur á vef CNN að hér á landi séu 13 jólasveinar sem gefa börnum í skóinn á hverjum degi 13 dögum fyrir jól. Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi ku vera einn sá jólalegasti í heiminum.
Þegar Reykjavík er þakin snjó og norðurljósin lýsa upp borgina mun höfuðborg Íslands vera ein sú jólalegasta í heiminum en CNN lýsir Reykjavíkurborg á þennan máta yfir Jólahátíðina.