Anna Margrét Ólafsdóttir leikskólastjóri í Nóaborg fékk á dögunum verðlaun fyrir besta barnaefnið á netinu, námsleikjavefinn paxel123.com. Hún deildi verðlaununum með Selmu Hrönn Maríudóttur sem fékk verðlaunin fyrir grallarasögur á síðunni grallarar.is. SAFT á Íslandi efndi til samkeppni um besta vefinn í tilefni af Alþjóða netöryggisdeginum.
Vefurinn paxel123.com er á átta tungumálum og á honum eru 8 leikir, en Anna Margrét hefur m.a. fengið styrk frá mannréttindaráði Reykjavíkur til að þýða leikina yfir á pólsku.
Í umsögn um dómnefndar um Paxel123 segir m.a. að hann sé mjög skemmtilegur námsleikavefur, sem býr yfir miklum möguleika til áframhaldandi þróunar. Vefurinn er mjög aðgengilegur fyrir börn, leikirnir eru fjölbreyttir, á mörgum tungumálum og styðja við stærðfræðilega hugsun og móðurmálsörvun. Einnig bjóða leikirnir upp á mismunandi erfiðleikastig sem er gott fyrir yngstu notendurna.