Vel sóttur íbúafundur um Betri hverfi í Laugardal

Umhverfi Framkvæmdir

70 manns sóttu fund með borgarstjóra um Betri hverfi í Laugardal í gær, en fundurinn var haldinn í Laugalækjarskóla. Jón Gnarr borgarstjóri flutti ávarp þar sem hann fór yfir framkvæmdir borgarinnar sem gerðar voru í hverfinu í tengslum við verkefnið Betri hverfi í fyrra. Reykjavíkurborg mun aftur verja 300 milljónum til verkefnisins Betri hverfi á þessu ári og hvatti Jón íbúa í Laugardal til að senda inn ábendingar að verkefnum sem þeir telja að geti bætt hverfið. Opnað hefur verið fyrir ábendingar á heimasíðunni www.betrireykjavik.is og á undirsíðunni Betri hverfi geta íbúar sett inn hugmyndir að stærri og smærri verkefnum.

Að lokinni framsögu borgarstjóra var opnað fyrir spurningar úr sal. Meðal þess sem íbúar vildu ræða voru skipulagsmál, umferðarmál, málefni aldraðra, bílastæðamál í Laugardal, sorphirðu og margt fleira. Þeim sem ekki komust að með fyrirspurnir sínar á fundinum er bent á netfangið betrireykjavik@ibuar.is og verður þeim erindum komið áleiðis til viðkomandi sviða.

Í lokin var svo hópavinna þar sem fundargestir ræddu um hugmyndir sem væru hverfinu til bóta. Meðal hugmynda sem fram komu á fundinum má nefna: nýtingu græna svæðisins við Suðurlandsbraut sem golfæfingasvæði, upphitaða göngustíga í Laugardal, gera Laugarnestangann útivistarvænni og mannlífstorg á Hrísateig. Að fundinum loknum stóðu því eftir fjölmargar áhugaverðar og skemmtilegar hugmyndir um hvernig íbúar Laugardals vilja bæta hverfið sitt. Þær munu á næstu dögum birtast í nafni Íbúafundar Laugardals undir Betri hverfum á www.betrireykjavik.is. Þá var dregið í verkefnahóp úr nöfnum áhugasamra íbúa og er hann nú fullskipaður.

Ræða borgarstjóra.

Fundargerð úr Laugardalnum.