Vel sóttur fundur um hverfisskipulag í Vesturbæ

Skipulagsmál

""

Tæplega 70 manns mættu á íbúafund hverfisskipulags í Vesturbænum í gær. Formaður skipulagsráðs, Páll Hjaltason, opnaði fundinn og Björn Axelsson skipulagsfulltrúi kynnti vinnuna við hverfisskipulagið.

Fundurinn var með vinnufundarsniði og settust íbúar á vinnuborð með starfsfólki umhverfis- og skipulagssviðs og ráðgjöfum sem vinna að hverfisskipulagsvinnunni.

Fundargestir tóku virkan þátt í vinnunni og höfðu margar góðar hugmyndir fram að færa. Íbúar bentu á að hraðakstur sé tíður í hverfinu og því væri nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að lækka umferðarhraða á ýmsum götum og koma fyrir zebrabrautum. Þá var einnig rætt um tækifærin sem kunna að vera í vannýttum svæðum eins og Hagatorgi og græna svæðinu í kringum sundlaugina. Íbúum þótti gott að búa í vesturbænum vegna þess að það er stutt að ganga milli staða, öruggt fyrir börn að leika sér og mikil samkennd meðal íbúa.

Börn eru sérstaklega velkomin á fundina en það er sérstakt barnahorn með skemmtilegu og fróðlegu barnasamráði á fundunum.

Hverfisskipulag er stærsta skipulagsverkefni sem unnið hefur verið á Íslandi og frábært tækifæri fyrir íbúa að hafa áhrif á skipulag hverfa sinna. Gott skipulag getur leitt af sér betri lýðheilsu, öruggara umhverfi og betra samfélag.