Vel heppnuð öskudagsráðstefna

Skóli og frístund

""

Er munur á kynjunum í námi og ef svo er hvernig má þá bæta kennsluaðferðir til að kom betur til móts við stráka og stelpur? Þetta var aðalinntakið í erindi Geoff Hannan á öskudagsráðstefnunni sem haldin var í Gullhömrum 13. febrúar. Margir könnuðust við lýsingar hans á ólíkum þroska og námsstyrk stúlkna og drengja, en aðrir töldu varasamt að alhæfa um of um kynjamuninn. Óhætt er því að segja að Hannan hafi hrist upp í áheyrendum sínum og vakið upp margar spurningar. 

Josef Huber fjallaði um lýðræðismenningu, gildi menntunar í lýðræðismenningu og þau almennu gildi sem lýðræðið byggir á, s.s. hugmyndafræðina um sjálfbæra þróun. Huber starfar hjá menntastofnun Evrópuráðsins og hefur umsjón með eflingu lýðræðislegrar þátttöku og fjölmenningalegrar áherslu – Pestalozzi áætlunina. Í erindi sínu horfði hann til framtíðar og þá staðreynd að í raun væru það kennarar, í sinni daglegu kennslu, sem kæmu lýðræðislegum aðferðum og breytingum til leiðar. Skólinn væri því afar mikilvæg lýðræðisstofnun.

Um 600 reykvískir grunnskólakennarar sóttu öskudagsráðstefnuna sem nú var haldin í ellefta sinn í samstarfi skóla- og frístundasviðs, Kennarafélags Reykjavíkur og Félags skólastjórnenda í Reykjavík. Yfirskrift hennar að þessu sinni var Betri í dag en í gær.