Vel heppnuð kvikmyndahátíð barna

Skóli og frístund Menning og listir

""

Föstudaginn 31. maí var haldin kvikmyndahátíð í Mjódd þar sem sýndur var afrakstur af starfi kvikmyndasmiðja í frístundaheimilum Miðbergs. Sýndar voru myndir frá Álfheimum, Hraunheimum og Vinaheimum og Vinasel sýndi stop-motion mynd sem unnin var fyrir Barnamenningarhátíð. Börnunum var boðið í bíó í Sambíó og fengu popp og svala með. Það var mikil gleði og spenna að fá að sjá sig eða vini sína á stóra tjaldinu. Foreldrar fengu síðan tækifæri nú í vikunni til að sjá myndirnar og panta sér DVD-diska á sérstakri sýningu í Samkomuhúsinu í Seljaskóla.

Að sögn Herdísar Snorradóttur, deildarstjóra barnastarfs í Miðbergi, er ætlunin að halda áfram með kvikmyndasmiðjur næsta haust. Styrkur fékkst frá Þróunarsjóði til verkefnisins fyrir árið 2013. Hafsteinn Vilhelmsson hafði veg og vanda af starfinu með börnunum ásamt því að sjá um uppsetningu á handriti barnanna, upptökur, hljóð og klippingu á myndum. Börnin sáu algerlega sjálf um að skrifa handritin og ákveða persónur og leikendur á hverju frístundaheimili fyrir sig en mismunandi var hversu mörg börn voru í kvikmyndaklúbbunum eftir heimilum.