Vefur Reykjavíkurborgar verðlaunaður

""

Vefur Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is var útnefndur besti vefur sveitarfélaga á Íslandi á UT deginum sem fram fór í gær.  Það var Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sem afhenti verðlaunin á Grand Hótel en þar voru einnig kynntar niðurstöður úttektar sem gerð var á  opinberum vefjum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga nú í haust

Þetta er í fimmta sinn sem slík úttekt hefur verið gerð. Niðurstöður könnunarinnar eru mikilvægt tæki til að fylgjast með þróun opinberra vefja með tilliti til innihalds, nytsemi, aðgengis, þjónustu og rafrænnar lýðræðislegrar þátttöku á vefjum. Allar nánari upplýsingar um úttektina er að finna á UT vefnum 


Í niðurstöðu dómnefndar segir um vef Reykjavíkurborgar; „Vefurinn er vel skipulagður og skýr afmörkun á milli efnisflokka. Vefleitin er til fyrirmyndar, notandi á auðvelt með finna það sem leitað er að og tillögur frá leitarvélinni eru gagnlegar. Ótvíræður kostur er að vefurinn er aðgengilegur í öllum tækjum.“


Dómnefndina skipuðu; Marta Lárusdóttir, lektor í tölvunarfræði við HR og sérfræðingur í viðmótshönnun, Rakel Pálsdóttir, forstöðumaður almannatengsla hjá Samtökum iðnaðarins og Sigurjón Ólafsson, ráðgjafi hjá Funksjón vefráðgjöf.


Vefur Reykjavíkurborgar opnaði í nýrri útgáfu fyrir rúmlega mánuði en samstarfsaðilar borgarinnar við vefsmíðina voru Hugsmiðjan sem veitti ráðgjöf um hannaði grafískt viðmót vefsins og Emstrur sem leiddu innleiðingu á vefumsjónarkerfinu Drupal og smíði vefsins í samvinnu við starfsmenn borgarinnar.


„Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur sem höfum verið að puða við að gera þennan vef aðgengilegri og skemmtilegri fyrir notendur. Svona viðurkenning er meira en lítið uppörvandi og hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut og gera enn betur. Markmiðið er auðvitað að veita eins fullkomna þjónustu á vefnum og hægt er,“ segir Bjarni Brynjólfsson upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar.


Það er upplýsinga- og vefdeild Reykjavíkurborgar sem rekur vefinn ásamt facebook síðu Reykjavíkurborgar en notendur vefsins eru að jafnaði um 20 – 25.000 á viku. 


Hreinn Hreinsson, vefritstjóri reykjavik.is, er ekki síður ánægður með viðurkenninguna.  „Við erum mjög stolt af þessum árangri, sérstaklega þar sem stutt er síðan vefurinn opnaði. Ég er óendanlega þakklátur því frábæra samstarfsfólki sem kom að þessu verkefni. Vefurinn er snjallvefur þannig að hann virkar jafn vel í tölvu, spjaldtölvum og símum og allt efnið á honum og framsetning þess miðar að því að setja hlutina fram með einföldum og aðgengilegum hætti hvort sem fólk kýs að nálgast þær á okkar vef eða í gegnum leitarvélar og samfélagsmiðla. Þetta er mikil breyting frá því sem áður var og tækifærin framundan eru endalaus, m.a. vegna þess að við erum komin í ,,open source" umhverfi sem skapar okkur alveg nýja stöðu,“ segir Hreinn.