Félagsmiðstöðin Holtið í Norðlingaholti blæs til allsherjar útivistarmánaðar fyrir unglingana í febrúar. Hugmyndin er í takt við starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar en Holtsráðið útfærði þessa fjörugu viku á starfsdegi sínum í upphafi árs. Þar skipulagði ráðið nokkra viðburði sem munu fara fram utandyra þrátt fyrir nepjulega vetrarveðráttu.
Æskufólkið í Norðlingaholti ætlar að klæða sig vel upp og leika sér saman í battafótbolta og halda bolludagskaffi úti í Björnslundi. Hápunktur mánaðarins eru tveir leikir sem kallast Hungurleikar og Næturleikar. Þeir eru krefjandi og skemmtileg blanda af hópeflisleikjum og hlutverkaleikjum. Í Næturleikum mun unga fólkið etja kappi við starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar. Unglingarnir munu vera í hlutverki strokufanga en starfsmenn verða í hlutverkum fangavarða sem leggja allt á sig til að klófesta fangana. Þar mætast stálin stinn og verður án efa mikið hlegið.
Unglingarnir í Holtinu ætla ekki að láta kuldann á sig fá.