Útinám í Breiðholti

Skóli og frístund Mannlíf

""

Útinám hefur verið í brennidepli undanfarna mánuði í Breiðholti. Námskeiðsröð þar sem fjallað hefur verið um útinám er nú lokið. Þjónustumiðstöð Breiðholts skipulagði útinámsfræðsluna í samstarfi við Helenu Ólafsdóttur verkefnisstjóra hjá Náttúruskólanum og Ólaf Oddsson verkefnastjóra Lesið í skóginn- með skólum.

Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á útinámsfræðslu á hverfisgrunni. Starfsfólk Reykjavíkurborgar sem vinnur með börnum og unglingum í Breiðholti nýtti sér vel námskeiðin. Mikill áhugi hefur vaknað í hverfinu fyrir því að nýta útinám í starfi leikskóla og grunnskóla og á vettvangi frítímans. Í útinámi er umhverfið og náttúran sá efniviður sem unnið er með. Kennslan eða starfsemin fer reglulega fram utandyra í útinámi, þannig verður útinám eðlilegur hluti starfsins.

Gera má ráð fyrir að boðið verði upp á fleiri námskeið síðar enda eru möguleikar útináms afar fjölbreyttir og áhugi fyrir frekara námi mikill. Vonir standa til þess að jafningjafræðsla þróist meðal þeirra sem vinna með börnum og unglingum í hverfinu þegar almenn reynsla hefur myndast í Breiðholtinu um útinám. Þannig verði útinámið sjálfbært og hluti af símenntun starfsmanna.