Útilistaverk fyrir börn og fullorðna afhjúpað við Kjarvalsstaði

Listasafn Reykjavíkur afhjúpar útilistaverkið Viðsnúning eftir Guðjón Ketilsson við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum, sumardaginn fyrsta, 25. apríl kl. 13. Verkið er í skemmtilegu samtali við umhverfið á Klambratúni og er unnið með það í huga að börn geti nýtt það í leik og starfi. Þetta listaverk var unnið í samráði við íbúa í Hlíðunum og hverfisráð og  varð fyrir valinu í samráðverkefninu Betra hverfi í fyrra. Einar Örn Benediktsso, formaður menningar-og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, afhjúpar útilistaverkið að viðstöddum börnum og fullorðnum.

Samráðsvefurinn Betri Reykjavík er ætlað að efla íbúalýðræði og auka þátttöku borgarbúa í að bæta nærumhverfi sitt og möguleika til útivistar, samveru, leikja og afþreyingar. 

Dómnefnd, sem var m.a. skipuð fulltrúum frá íbúasamtökum Hlíðanna, hverfisráði Hlíða og innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur valdi tillögu Guðjóns Ketilssonar að útilistaverki. Nefndin  taldi tillögu Guðjóns áhugaverða fyrir börn og fullorðna, hún væri einföld, skemmtileg og gæfi ímyndunaraflinu lausan tauminn. 

Útilistaverkið er afhjúpað meðan á Barnamenningarhátíð stendur en í tilefni hennar fá fullorðnir í fylgd með börnum frítt inn á Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn á meðan á hátíðinni stendur 23. - 28. apríl.