Útikennsluapp fyrir leikskóla- og grunnskólabörn var kynnt í dag
Umhverfi Skóli og frístund
Náttúruskólinn gaf í dag, á degi íslenskrar náttúru, út nýtt forrrit til útikennslu og vettvangsnáms. Leikskólabörn úr Hofi fóru í fyrsta leiðangurinn með útikennsluappið og skemmtu sér konunglega.
Náttúruskólinn gaf á degi íslenskrar náttúru út nýtt forrrit til útikennslu og vettvangsnáms. Leikskólabörn úr Hofi fóru í fyrsta leiðangurinn með útikennsluappið og skemmtu sér konunglega í haustrokinu.
Útikennsluappið er forrit fyrir spjaldtölvur og snjallsíma sem birtir námsefni fyrir leik- og grunnskólabörn á tilteknum gönguleiðum í öllum hverfum borgarinnar. Notendur fá GPS púnkta með áhugaverðum stöðum og námsefni í formi texta og hljóða sem miðar að því að efla útikennslu og umhverfismennt. Verkefnið var styrkt af þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
Við líflega athöfn í Hljómskálanum var útikennsluappið opnað á netinu af Oddnýju Sturludóttur, formanni skóla- og frístundaráðs, en því næst lagði fríð fylking leikskólabarna upp í vettvangsferð í Hljómskálagarðinum þar sem þau kynntust m.a. þjóðskáldinu Jónasi Hallgrímssyni og hlustuðu á þröstinn góða sem hann orti um.
Leiðbeiningar um hvernig hlaða megi útikennsluappinu í snjallsíma og spjaldtölur eru á vefslóðinni www.utikennsluapp.is,