Útibíó í Árbænum

Skóli og frístund

""

Unglingar í félagsmiðstöðinni Tíunni tóku sig til um daginn og héldu útibíó fyrir félaga sína í Árbænum. 

Fjöldi fólks streymdi að enda enda var kvöldið einstaklega fagurt með lognstillu og norðurljósum á himni. Það mætti jafnvel segja að um tvöfalda sýningu hafi verið að ræða eins og sjá má af meðfylgjandi mynd.



Kvikmyndinni var varpað á Árbæjarkirkju og skilaði sér vel til áhorfenda. Enda þótt kvöldið hafi verið fallegt var nokkuð svalt en það var leyst með því að bjóða bíógestum upp á heitt kakó og teppi. Þessi viðburður heppnaðist einstaklega vel og má búast við að útibíó verði aftur í Árbænum áður en langt um líður.