Uppbygging í Reykjavík

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Umfangsmiklar framkvæmdir á vegum einkafyrirtækja, ríkisins og Reykjavíkurborgar eru fyrirhugaðar í Reykjavík á næstu árum.  Til að kynna þessi uppbyggingaráform verður haldin sýning í  Ráðhúsi Reykjavíkur 2. – 7. október með þátttöku framkvæmdaaðila. 

Auk sýningarinnar verða haldnir kynningarfundir í Ráðhúsinu um væntanlega uppbyggingu.  Miðvikudaginnn 2. október er framkvæmdaaðilum boðið til morgunfundar.  Degi síðar,  3. október kl. 17:00, verður kynningarfundur fyrir almenning. Hópur sérfræðinga tekur þátt í fundunum með borgarstjóra og formönnum borgarráðs og skipulagsráðs. 

Uppbyggingareitir og þróunarsvæði sem kynnt verða eru um 65 talsins. Áform eru mislangt á veg komin, sum eru komin til framkvæmda, en önnur enn á hugmyndastigi eða í deiliskipulagsferli. Megináhersla sýningarinnar er á verkefni sem unnið er að eða koma til framkvæmda á næstunni.  

Undirbúningur sýningar og funda er á hendi skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, en það er ný skrifstofa í Ráðhúsinu sem hefur það hlutverk að stuðla að uppbyggingu í Reykjavík með samhæfingu skipulags, fjárfestinga og framkvæmda.  Hrólfur Jónsson stjórnandi skrifstofunnar segir mikinn áhuga meðal framkvæmdaaðila á þátttöku í sýningunni og það stefni í góða kynningu.

Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar sér um markaðssetningu og þróun lands í samræmi við  atvinnustefnu borgarinnar og aðalskipulag.  Hún vinnur í samráði og samvinnu við fagsvið og fyrirtæki borgarinnar, önnur sveitarfélög, hið opinbera sem og  einkaaðila. Þá heldur skrifstofan utan um gerð úthlutunarskilmála og lóðaúthlutanir.