Uppbyggilegur íbúafundur í Grafarholti – Úlfarsárdal
Um 80 manns sóttu íbúafund borgarstjóra og embættismanna Reykjavíkurborgar sem haldinn var fyrir íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals í gær. Fundurinn var haldinn í Sæmundarskóla, einum nýjasta skóla borgarinnar.
Fjölmargar fyrirspurnir komu fram á fundinum varðandi frekari uppbyggingu í Úlfarsárdal, aðalskipulag, fjarskiptamastur á Úlfarsfelli, bensínstöð í miðju Grafarholti og fleiri atriði.
Íbúar komu m.a. með ábendingar um skilvirkari umferðarmannvirki í hverfinu, sameiginlega moltugerð fyrir hverfið og stubbahús og þrif við strætisvagnaskýli. Reykingamenn þurfa greinilega að athuga sinn gang því borgarstjóri lýsti því yfir að sígarettustubbar væru vandamál út um alla borg, ekki síst við strætóskýli þar sem þeir liggja í hrönnum. Er augljóst að ekki verður dregið úr þeim sóðaskap nema reykingamenn taki sig saman í andlitinu og hirði betur um stubba sína.
Borgarstjóri fór yfir helstu áherslur í hverfinu. Til stendur að byggja nýjan skóla, bókasafn og sundlaug í Úlfarsárdal á allra næstu árum. Hann rakti síðan í ítarlegu máli þau verkefni sem kosin voru til framkvæmda í hverfinu í rafrænum íbúakosningum í fyrra en þau voru fjölmörg. Meðal verkefna voru bættir göngustígar, gróðursetning trjáa, fuglaskilti við Reynisvatn, bekkir úr náttúrulegum efnum við gönguleiðir og fleira.
Í Grafarholti – Úlfarsárdal búa tæplega sex þúsund íbúar. Í fyrra voru kosin verkefni í hverfinu sem kostuðu rúmar 18 milljónir. Fjármagn til hverfapotta í ár verður það sama fyrir öll hverfi borgarinnar eða 300 milljónir. Hvert hverfi fær 7.5 milljón óháð íbúafjölda en potturinn skiptist síðan hlutfallslega eftir höfðatölu íbúa.
Verkefnið Betri hverfi er nú komið í fullan gang aftur og er óskað eftir því að íbúar í öllum hverfum borgarinnar skili inn hugmyndum að smærri verkefnum í hverfunum. Er opið fyrir innsetningu nýrra hugmynda á samráðsvefnum www.betrireykjavik.is á undirvefnum Betri hverfi til 15. febrúar nk.
Reykvíkingar eru hvattir til þess að ganga um hverfin sín og athuga hvað betur megi fara og senda sem allra flestar hugmyndir inn á vefinn. Þá eru þeir einnig hvattir til að skoða innsendar hugmyndir og ræða þær á vefnum en vinsælustu hugmyndirnar á vefnum fara í rafræna kosningar dagana 14. - 19. mars næstkomandi.
Ítarefni: