Snjóruðningstæki sem voru á ferðinni í morgun voru ræst að nýju nú seinnipartinn og verða á ferðinni fram yfir kvöldmat. Víða er hálka og í efri byggðum blinda vegna skafrennings. Förum því varlega og ekki fara af stað á vanbúnum bílum.
Í nótt klukkan þrjú metum við stöðuna eins og venjulega og ræsum út mannskap eftir þörfum til snjóhreinsunar og hálkueyðingar á umferðargötum, göngustígum og stofnanalóðum.
Viðbragðsáætlanir Reykjavíkurborgar í snjóhreinsun og hálkueyðingu finnur þú á vefnum >> Snjóhreinsun og hálkueyðing.