Ungum lestrarhestum fjölgar í borginni - bæði meðal stráka og stelpna
Skóli og frístund Menning og listir
Nemendur af báðum kynjum hafa merkjanlega meiri áhuga á lestri og Lestrarhátíð hefur jafnframt skilað sér í auknum yndislestri.
Nemendur í Reykjavík hafa merkjanlega meiri ánægju af bóklestri en áður ef marka má Skólapúlsinn.
Í könnun Skólapúlsins svara nemendur í 6.-10. bekk á öllu landinu spurningum um skólanámið, líðan og bekkjaranda. Ánægja af lestri hefur frá upphafi mælinga verið mikil meðal reykvískra nemenda og á síðasta skólaári voru nemendur í Reykjavík í 4. sæti af 35 sveitarfélögum sem taka þátt í í mælingum á lestraránægju. Ánægja bæði reykvískra stráka og stelpna var meiri en að meðaltali í öðrum sveitarfélögum. Tæp 40% reykvískra nemenda sögðu að lestur væri eitt af uppáhaldsáhugamálum sínum.
Lestrarhátíð hvetur til yndislesturs
Lestrarhátíð sem nú er að ljúka er greinilegur hvati til aukins yndislestur meðal reykvískra skólabarna ef marka má tölur úr Austurbæjarskóla. Bókasafnskennari þar tók saman lestrarárangur barna í yndislestri frá 1. – 7. bekkjar nú í októbermánuði og lásu börnin þá samanlagt 122.964 blaðsíður. Sambærileg talning var gerð í október í fyrra þegar fyrsta Lestrarhátíðin var haldin. Þá lásu börnin í skólanum 61.393 blaðsíður.
Á nýliðinni Lestrarhátíð – Ljóð í leiðinni fóru 500 skólabörn í ljóðagöngur sem Borgarbókasafnið og Bókmenntaborgin buðu upp á. Jafnframt var unnið markvisst með ljóð, ljóðalestur og ljóðasöng í fjölmörgum leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar. Meðal skemmtilegra verkefna sem fóru af stað var Ljóðaormurinn í Vesturbæ þar sem leikskólabörn og grunnskólabörn fóru í ljóðaham, ortu á víxl og fluttu orminn á milli skóla.