Ungmenni flytja tillögur í borgarstjórn

Skóli og frístund Mannréttindi

""

Fulltrúar úr Reykjavíkurráði ungmenna fluttu sex mál í borgarstjórn í dag og tóku þátt í umræðum. Þetta er í 11. sinn sem ráðið fundar með borgarstjórn, en markmið fundanna er að gera fólki undir 18 ára aldri kleift að koma skoðnum sínum á framfæri á lýðræðislegum vettvangi.

Slíkir fundir hafa verið haldnir árlega frá árinu 2002 og gefið góða raun.Tillögurnar sem fluttar voru í dag sneru að ýmsu, s.s. að bæta lífsleiknikennslu í skólum og þá sérstaklega kynfræðslu.



Elínrósa Birta Jónsdótttir úr ungmennaráði Árbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts flutti tillögu um aukið starf fyrir 16 ára og eldri í félagsmiðstöðvunum og færði fyrir því góð rök. Jessý Jónsdóttir úr ungmennaráði Grafarvogs flutti tillögu um meira samræmi í aðstöðu félagsmiðstöðvanna og Sólrún Ásta Björnsdóttir frá ungmennaráði Árbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts lagði til aðgerðir til að bæta bæjarbrag í Grafarholtinu.



Elín María Árnadóttir úr ungmennaráði Vesturbæjar hvatti borgaryfirvöld til að hafa meira samráð við ungt fólk og lýsti eftir betri upplýsingum um framgang mála sem koma frá ungmennum. Að lokum flutti Sigurður Einar Jónsson úr ungmennaráði Breiðholts tillögu um breytingu á nemakortum í strætó.



Borgarfulltrúar fögnuðu öllum tillögunum og spunnust um þær líflegar umræður. Jón Gnarr borgarstjóri sagði fundinn frábært tækifæri fyrir borgarfulltrúa og alla sem vilja gera Reykjavík að betri borg, enda tillögurnar allar góðar og gagnlegar