Unglingar í Reykjavík - málþing

Foreldrafélagið í Réttarholtsskóla efnir til málþings í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 20. apríl kl. 13.00 undir fyrirsögninni Unglingar í Reykjavíkur - þeirra framtíð - okkar ábyrgð. Jón Gnarr fyrrverandi nemandi í Réttó ávarpar þingið.

Fyrirlesarar á málþinginu eru Sigga Dögg kynfræðingur, Jóhannes Kr. Kristjánsson fréttamaður, Viðar Halldórsson dr. í félagsfræði, Vilborg Arna Gissuradóttir pólfari og ferðamálafræðingur, Hrafnkell Ásgeirsson jafningjafræðari og Sunneva Sverrisdóttir jafningjafræðari.

Fundarstjóri er Sigurður Guðmundsson prófessor.

Málþingið er öllum opið og verður boðið upp á kaffiveitingar.