Ungklassík með tónleika í Ráðhúsinu

Þriðjudaginn 16. apríl mun Reykjavíkurborg halda fjórðu Ungklassík ársins í Ráðhúsinu. Ungklassík er tónleikaröð sem er haldin í samstarfi við tónlistarskóla Reykjavíkur. Markmið Ungklassíkur er að gefa ungu og hæfileikaríku tónlistarfólki tækifæri til að koma fram og kynna sína túlkun á verkum gömlu meistaranna. 

Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 17.30 og eru allir velkomnir.