Undirbúningur Menningarnætur stendur nú sem hæst. Dagskrá Menningarnætur í ár verður sem áður sannkallað veisluborð þar sem nýjir og gamlir viðburðavinir mæta gestum sínum. Hægt verður að sækja gróna og góða viðburði en einnig upplifa eitthvað sem maður hefur aldrei séð áður. Á Menningarnótt fær hugmyndaauðgi og sköpunarkraftur borgarbúa og gesta hennar að njóta sín um alla miðborg.
Áherslusvæði Menningarnætur í ár er Gamla Höfnin en þar hefur menningarlíf og mannlíf blómstrað síðustu misseri. Mikill fjöldi viðburða verður á þessu svæði og meðal þeirra ráðgáta í varðskipinu Óðni, listahátíð á Bakkastígnum, ljóðasigling, tónleikar pólsku poppstjörnunnar Monicu Brodka, Black Yoga Screaming Chamber, menningarsetur öfgarokkhljómsveitarinnar Muck, Heimstónlist og hamingja í Eldstöðinni, Tangódans verður stiginn, og Þjóðkór íslensdinga mun þenja raddböndin.
Á Menningarnótt er gestum boðið að ganga í bæinn. Að ganga í bæinn hjá íbúum miðborgarinnar og þiggja vöfflur og kaffi. Að ganga í bæinn í Hörpu og fara á tónleika með pólskum, indverskum, færeyskum og íslenskum listamönnum og kynnast þeim fjölmörgu hátíðum sem eru í boði í Reykjavík allt árið. Að ganga í bæinn í Iðnó og sprella með Sirkús Íslands.
FJÖLSKYLDAN SAMAN Á MENNINGARNÓTT
Menningarnótt er fyrir alla aldurshópa, unga jafnt sem aldna og verður boðið upp á mikið úrval verður af fjölbreyttum listasmiðjum fyrir börn og fullorðna um allan bæ. Sirkús Íslands mun skemmta gestum og gangandi í Iðnó, Sinfóníuhjómsveit Íslands býður á tónleika með Maximús Músíkús í Hörpu, Bylgjan verður með barnadagskrá á Ingólfstorgi, Latabæjarhlaupið er á sínum stað í Hljómskálagarðinum, Leikhópurinn Lotta verður á róluvellinum í Grjótaþorpinu og svona mætti lengi telja.
NÝTT MERKI MENNINGARNÆTUR
Menningarnótt hefur fengið nýtt merki en við gerð merkisins var leitað fanga í menningararfleifð þjóðarinnar og innblástur sóttur í útsaums- og vefnaðarmynstur frá 18. öld. Gömlu, íslensku mynstrin hafa verið færð í nýjan og óvæntan búning og fjölbreytilegt flæði litanna rímar við listrænt og skapandi yfirbragð Menningarnætur, auk þess sem punktarnir vísa í litríkt mannlíf Reykjavíkurborgar. Þá passar leturgerðin vel við formið, er gamaldags og nútímaleg í senn.