25 skólar hafa skráð sig til þátttöku í Skrekk 2013. Undankeppnin fer fram í Borgarleikhúsinu 18. 19. og 20. nóvember.
Þegar undankvöldunum er lokið þar sem sex skólar hafa komist áfram mun dómnefnd að auki velja tvo skóla sem taka þátt í úrslitakvöldinu sem fram fer þann 25. nóvember. Á lokakvöldinu verða því 8 skólar sem keppa til sigurs.
Viku fyrir keppni munu starfsmenn Skrekks fara í heimsókn í alla skóla, til þess að skoða og undirbúa sýningaratriðin.
Hér að neðan má sjá hvaða skólar keppa á hvaða tímum og hvenær heimsóknir eru í hvern skóla.