Margt spennandi er í umhverfisstefnu umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, þar er m.a. kveðið á um jákvæð áhrif frá rekstri, aðgerðum og framkvæmdum á vegum sviðsins og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og að leggja stund á vistvæn innkaup á vörum, þjónustu, framkvæmdum og ráðgjöf.
Umhverfisstefna umhverfis- og skipulagssviðs
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur það að leiðarljósi að ásýnd og ímynd Reykjavíkur endurspegli skapandi hugsun íbúa hennar þar sem mannlíf og umhverfi er haft í fyrirrúmi og gott er að búa.
Umhverfis- og skipulagssvið ætlar að:
Vera í fararbroddi í umhverfismálum í Reykjavík og gera vistvænan árangur sviðsins víðkunnan.
Auka jákvæð umhverfisáhrif frá rekstri, aðgerðum og framkvæmdum á vegum sviðsins og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum.
Bæta starfsumhverfi sviðsins, þannig að það verði bæði heilnæmt og öruggt.
Leggja stund á vistvæn innkaup á vörum, þjónustu, framkvæmdum og ráðgjöf.
Draga úr myndun úrgangs og auka endurnotkun og endurvinnslu.
Umgangast orkuauðlindir með virðingu, hagkvæmni og nægjusemi í huga.
Stuðla að vistvænni hugsun og hegðun starfsfólks, annarra borgarbúa og fyrirtækja með því að miðla efni um umhverfismál á skýran og greinargóðan hátt.
Tryggja að lagalegum kröfum sem tengjast starfsemi sviðsins sé fylgt og vera öðrum til fyrirmyndar með því að setja ný viðmið.
Mæla árangur umhverfisstefnunnar og vinna markvisst að umbótum.
Umhverfisstefna USK