Tyggjóið í tunnuna takk!
Undanfarnar vikur hafa gangstéttir í miðbænum verið hreinsaðar af tryggjóklessum. Enginn munu sakna þeirra. Götur eru ekki ruslafötur og tyggjóið fer beina leið í tunnuna.
Tyggjóið var hreinsað með háþrýstidælum og gufu en gangstéttir s.s. í Austurstræti, á Lækjartorgi og í Bankastræti hafa verið þaktar með tyggjóklessum. Nú er einnig verið að hreinsa jórturgúmmíið á gangstéttum á Laugaveginum. Breytingin er áberandi og vegfarendur kunna að meta hana.
Kostnaður við hreinsunina, sem hefur staðið í þrjár vikur, er kominn upp í hálfa milljón króna. Margt mætti gera uppbyggilegt fyrir þá upphæð, s.s fyrir börn og unglinga í borginni.
Munum að götur eru ekki ruslafötur og hendum tyggjóinu í tunnurnar!