Tveir grunnskólar fá nýja stjórnendur
Skóla- og frístundaráð gekk á fundi sínum í dag frá ráðningu skólastjóra við tvo grunnskóla í borginni. Hanna Guðbjörg Birgisdóttir var ráðin skólastjóri við Háaleitisskóla og Dagný Annasdóttir skólastjóri við Melaskóla.
Hanna Guðbjörg Birgisdóttir hefur lokið framhaldsnámi í stjórnun menntastofnana frá Kennaraháskóla Íslands, er með diplóma í sérkennslufræðum og mun útskrifast með MA próf í menntunarfræðum frá HÍ í vor. Hún hefur víðtæka reynslu af kennslu og stjórnun, en hún hefur verið deildarstjóri sérkennslu, aðstoðarskólastjóri og skólastjóri í afleysingum við Vesturbæjarskóla frá árinu 2002.
Tíu sóttu um skólastjórastöðuna í Háaleitisskóla.
Dagný Annasdóttir sem ráðin var skólastjóri við Melaskóla hefur lokið framhaldsnámi í stjórnun og forystu menntastofnana frá Høgskolen i Buskerud í Noregi og er með meistaragráðu í sérkennslufræðum frá Óslóarháskóla, diplóma í stjórnun og opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur víðtæka reynslu af kennslu og stjórnun, sem deildarstjóri sérkennslu, aðstoðarskólastjóri og skólastjóri, m.a. við Öskjuhlíðarskóla. Sextán sóttu um skólastjórastöðuna í Melaskóla.