Túbusjónvörp óskast

Menning og listir

""

Hönnunarhátíðin HönnunarMars hefur vaxið og dafnað síðustu ár og nú ætlar umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur að taka þátt í fyrsta sinn með sýningu á Hlemmi. Sviðið hefur aðkomu að mörgum stærstu hönnunarverkefnum borgarinnar í formi stefnumótunar, skipulags og eftirlits og það er því ekki seinna vænna fyrir sviðið að taka þátt!

 

Reykjavíkurborg festi kaup á húsnæði BSÍ á síðasta ári og lýsti áformum sínum um að færa skiptistöðina á Hlemmi þangað. Í kjölfarið hafa komið upp umræður og vangaveltur um framtíðaráform í tengslum við skiptistöðina á Hlemmi. Nú gefst borgarbúum tækifæri á að koma hugmyndum sínum um framtíð Hlemms á framfæri á HönnunarMars sem stendur yfir daganma 14. - 17. mars nk. 

 

Á sýningunni á Hlemmi verður leitast við að gera hana skemmtilega og líflega og nú vantar okkur túbusjónvörp (sem virka) með skarttengjum – það kemur í ljós á HönnunarMars hvernig þau sjónvörp verða notuð. Öllum sjónvörpum verður síðan komið í Góða hirðinn að sýningu lokinni og fá þar framhaldslíf.

 

Þeir sem eiga túbusjónvörp með skarttengjum mega koma með þau í afgreiðslu Reykjavíkurborgar, frá 27. febrúar til 1. mars,  í Höfðatorgi, Borgartúni 12 - 14, 105 Reykjavík.