Troðfullur salur á íbúafundi í Gerðubergi

Rétt um 150 manns sóttu íbúafund borgarstjóra og embættismanna Reykjavíkurborgar í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í gærkvöldi. Fundurinn var málefnalegur og uppbyggilegur í alla staði.



Jón Gnarr borgarstjóri fór yfir helstu framkvæmdir og áherslur borgarinnar í Breiðholti og fagnaði því að vera kominn til starfa í hverfinu en skrifstofa borgarstjóra hefur nú flust tímabundið í Breiðholt og mun borgarstjóri starfa þar til 7. febrúar.



Borgarstjóri fór ítarlega yfir verkefnið Betri hverfi í Breiðholtshverfi en fjölmörg verkefni sem kosin voru í rafrænum íbúakosningum í fyrra hafa nú verið framkvæmd, m.a. sett upp hundagerði við Arnarbakka, æfingaaðstaða, gróðursett tré, merkingar bættar og leikvellir lagaðir svo eitthvað sé nefnt. Hvatti borgarstjóri íbúa til að taka virkan þátt í því að koma með hugmyndir að betra hverfi í Breiðholti og að kjósa um verkefnin í rafrænum íbúakosningum sem fara fram dagana 14. - 19. mars nk. 



Fjölmargar fyrirspurnir bárust á fundinum. Meðal annars var lýst yfir óánægju með viðhald borgarinnar á umhverfi og mannvirkjum og að bæta mætti hreinsun opinna svæða og umgengni.



Þá komu fram hugmyndir um að lengja skíðabrekku í Seljahverfi og gera upp gamla Breiðholtsbæinn svo eitthvað sé nefnt. Einn íbúi stakk upp á því að götunöfnum yrði breytt í hverfinu og að þar yrðu í framtíðinni til Hrakhólar, Öskubakki og Skötusel.



Viðhald Breiðholtsskóla og Ölduselsskóla var einnig nefnt og rætt um aðgengi og öryggismál vegna umferðarmála við skólana í hverfinu.

Borgarstjóri og embættismenn svöruðu ábendingum og fyrirspurnum eftir bestu getu.  (Sjá fundargerð.)



Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Breiðholti er það sama og í fyrra eða rúmar 46.4 milljónir króna.



Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir hugmyndir borgarbúa og rökræðum vegna ýmissa smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.



Þeir sem ekki komust að með fyrirspurnir sínar á íbúafundinum er bent á netfangið betrireykjavik@ibuar.is og verður þeim erindum komið áleiðis til viðkomandi sviða.

Ítarefni:

Ræða borgarstjóra.

Fundargerð í Breiðholti.