Undanfarnar vikur hefur þriggja manna hönnunarteymi unnið að því að setja upp skúlptúr á torginu undir Bernhöftstorfunni á mótum Bankastrætis og Lækjargötu. Verkefnið er hluti af Torgi í biðstöðu sem er á vegum Reykjavíkurborgar.
Torginu hefur verið breytt með það að markmiði að gera það að áhugaverðum og aðgengilegri áningarstað fyrir borgarbúa. Í tilefni þessara tímabundnu breytinga var efnt til skemmtilegrar uppákomu með tónlist og veitingum á torginu fimmtudaginn 11. júlí.
Þeir sem hönnuðu breytt torg með tjörn þar sem taflborðið stendur löngum eru þau Friðrik Steinn Friðriksson upplifunarhönnuður, Laufey Jónsdóttir fatahönnuður og Sigurður Arent Jónsson listamaður.