Tilboðsfrestur í lóðir í Úlfarsárdal rennur út í dag

Framkvæmdir

""

Í dag kl. 16:00 rennur út frestur til að skila inn tilboðum í byggingarétt á lóðum í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási, en borgarráð samþykkti í síðasta mánuði nýja skilmála.  Horfið er frá sölu lóða á föstu verði með viðbótargjaldi en þær þess í stað boðnar út.  Kaupendum byggingaréttar er boðið upp á staðgreiðsluafslátt eða afborgunarlaus lán fyrstu þrjú árin sem bera enga vexti  fyrsta hálfa árið.  Með opnu tilboðsferli er jafnræðis gætt meðal þeirra sem áhuga hafa á lóðum í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási.

Í morgun höfðu borist um fjörtíu tilboð, en ekki liggur fyrir í hvað margar íbúðir. Allar slíkar upplýsingar verða teknar saman eftir að tilboðsfrestur rennur út í dag. „Reynslan sýnir okkur að flestir skila inn tilboðum síðasta daginn,“ segir Hrólfur Jónsson á skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg.

Uppbygging í Úlfarsárdal

Í boði eru 127 lóðir með byggingarétti fyrir 271 íbúð í þessum tveimur hverfum við Úlfarsá.

Í Úlfarsárdal eru 86 lóðir með byggingarétti fyrir 218 íbúðir:

• 3 lóðir fyrir fjölbýlishús með samtals 72 íbúðir,

• 10 lóðir fyrir raðhús með samtals 56 íbúðum,

• 17 lóðir fyrir parhús með 34 íbúðum,

• 56 lóðir fyrir einbýlishús.

Í Reynisvatnsási býðst 41 lóð með byggingarétti fyrir 53 íbúðir:

• 2 lóðir fyrir raðhús með samtals 13 íbúðum,

• 1 lóð fyrir parhús með 2 íbúðum,

• 38 lóðir fyrir einbýlishús.

Með byggingu á þeim lóðum sem nú eru boðnar út verða hverfin fullbyggð miðaða við núverandi áform. Hjá Reykjavíkurborg ríkir bjartsýni um gott gengi þess útboðs. Það hefur nú þegar færst aukinn kraftur í uppbyggingu í Úlfarsárdal því fyrr í sumar var gengið frá sölu tveggja fjölbýlishúsalóða með byggingarrétti fyrir 96 íbúðir.



Nánari upplýsingar:

Lóðir í Reykjavik www.reykjavik.is/lodir.

Frétt um uppbyggingu:  Sundlaug, íþróttahús og skóli í Úlfarsárdal.