Til spillis, listamannsspjall með Ívari Valgarðssyni, Hafnarhús, sunnudag 17. febrúar kl. 15

Menning og listir

""

Ívar Valgarðsson spjallar um innsetningu sína Til spillis sem nú er að finna  í A-sal Hafnarhússins.



Innsetningin samanstendur af þremur veggmyndum af málningardropum sem hafa lekið á gólfið í A-sal í Hafnarhúsi, Listasafni Reykjavíkur, auk þriggja ljósmynda. Ívar beinir stafrænum smásjármyndavélum, sem ætlaðar eru til vísindarannsókna, að dropunum og varpar myndum í rauntíma á veggina, eins konar stækkuðum stafrænum málverkum af dropunum. Hann vekur þannig athygli á málningu sem hefur farið til spillis og færir sér í nyt gáleysi málarans, sem málaði veggi sýningarsalarins, með því að færa dropana aftur upp á veggina.

Til spillis er líkt og fyrri verk Ívars nákvæmlega útfært, vel ígrundað og ljóðrænt. Ívar hrífst af þeim sköpunarkrafti sem á sér stað í mótun og uppbyggingu hins manngerða umhverfis, í háspennulínum sem flytja rafmagn milli landshluta, olíublettum á götu, málningarlögum á húsveggjum eða, eins og hér, í málningardropum sem hafa lekið á gólfið. Ívar hrífst þannig fyrst og fremst af síbreytileika og hringrás efnis og hugmynda.

Frítt er fyrir handhafa Menningarkortsins, en nánari upplýsingar um aðgangseyri eru hér.

Nánari upplýsingar um fræðslu og viðburði má finna hér.