Til hamingju með dag leikskólans

Skóli og frístund

""

Dagur leikskólans er í dag 6. febrúar. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Markmið dagsins er að beina sjónum að leikskólanum og því gróskumikla fagstarfi sem þar fer fram.

Átta starfsmenn og leikskólar í Reykjavík eru tilnefndir til Orðsporsins - viðurkenningu Kennarasambands Íslands sem veitt voru  í fyrsta sinn í dag;  

  1. Anna Gréta Guðmundsdóttir deildastjóri í Leikskólanum Sæborg · Fyrir einstakt viðhorf til barna og leikskólastarfsins.
  2. Fríða B. Jónsdóttir leikskólaráðgjafi á skóla- og frístundsviði · Fræðsla og ráðgjöf við leikskóla um fjölmenningu og kennslu íslensku sem annars tungumáls.
  3. Jóhanna Kr. Jónsdóttir sérkennslustjóri í leikskólanum Geislabaugi · Fyrir fagmennsku og mikinn metnað fyrir því starfi sem hún sinnir á Geislabaugi.
  4. Kolbrún Vigfúsdóttir fyrrv. leikskólaráðgjafi á SFS · Fyrir gott starf sem þróunarfulltrúi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
  5. Kolbrún Vigfúsdóttir fyrrv. leikskólaráðgjafi á SFS · Leikskólaþróun og fjölmenningarstefna.
  6. Leikskólinn Bjartahlíð – þróunarverkefni.
  7. Leikskólinn Langholt - Hrefna Sigurðardóttir · Fyrir gott starf við sameiningu Sunnu- og Holtaborgar í leikskólann Langholt.
  8. Sigrún B. Geirdal aðstoðarleikskólastjóri Maríuborg · Sigrún hefur starfað við leikskóla í rúmlega 40 ár og verður 67 ára um næstu áramót, hún er góð fyrirmynd í starfi, traust, fagleg og ein af þessum sem er fædd í starfið.

 

Alls barst 31 tilnefning til verðlaunanna sem komu í hlut Súðavíkurhrepps fyrir 6 klukkustunda gjaldfrjálsan leikskóla og Kristínar Dýrfjörð og Margrétar Pálu Ólafsdótturr fyrir opinbera umfjöllun um leikskólastarf hvor á sínum vettvangi og frá ólíkum sjónarhornum.

Sjá frétt um Orðsporið á vef menntamálaráðuneytisins.