Dagana 28. janúar - 1. febrúar héldu félagsmiðstöðvarnar á vegum frístundamiðstöðvarinnar Ársels sína árlegu hverfaleika. Þar öttu unglingar úr félagsmiðstöðvunum Fókus, Holtinu og Tíunni kappi í alls kyns keppnisgreinum. Má þar nefna: kappát, sms-keppni, blak, limbó, ljóðagerð, og skúlptúrakeppni.
Keppnisgreinarnar voru fjölbreyttar enda 17 talsins og fundu því allir eitthvað við sitt hæfi. Leikgleðin var allsráðandi og mikið hlegið þegar keppendur áttu hatrammar rimmur í spaugilegum greinum en stutt var í hádramatík og keppnisskap. Mjótt var á munum og stemmningin því rafmögnuð þegar úrslitin voru kynnt á lokahátíðinni á dansleik í Tíunni. Sigurvegari hverfaleikanna 2013 var félagsmiðstöðin Tían.