Þrettándagleðin í Grafarholti og Úlfarsárdal 2013

Þrettándagleðin í Grafarholti og Úlfarsárdal 2013

Þrettándagleði Grafarholts og Úlfarsárdals var haldin með pomp og prakt í gærkvöldi, 6. janúar. Þetta er í áttunda skipti sem þrettándagleði er haldin í Leirdal. Sérstaklega var til þess tekið í ár hversu mikill fjöldi íbúa lagði leið sína dalinn. Gleðin hófst á skrúðgöngum frá Fram heimilinu í Úlfarsárdal og frá Guðríðarkirkju í Grafarholti. Lúðraveit Grafarholts- og Grafarvogs leiddi göngurnar niður í dal.

Þegar í Leirdalinn var komið kom Leirdals húsið sér afar vel fyrir alla þá sem þurftu að létta á sér og ná hita í kroppinn en þar var sala á kaffi og kakó. Þar spilaði Lúðrasveit Grafarholts og Grafarvogs jólalög, jólasveinarnir og bræðurnir Kjötkrókur og Skyrgámur sungu og sprelluðu við mikla gleði barna á öllum aldri! Brenna var tendruð og glæsileg flugeldasýning Fram setti punktinn yfir i-ið.

Íbúasamtök Grafarholts og íbúasamtök Úlfarsárdals höfðu veg og vanda að framkvæmdinni og eiga heiður skilin fyrir frábæra skemmtun. Samstarfsaðilar þeirra voru: Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Lúðrasveit Grafarvogs og Grafarholts, Knattspyrnufélagið Fram, Sjóvá, Olís, Hverfisbækistöðin á Stórhöfða, Guðríðarkirkja, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Sigurður „Súddi“ Sigurðsson.