ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Þorrinn genginn í garð í Hlíðaskóla
Nemendur í Hlíðaskóla hafa þjóðlegar hefðir í heiðri. Þeir fögnuðu bóndadegi og upphafi þorrans á dögunum með hefðbundnum réttum.
Á boðstólum í hádeginu voru sviðahausar, hangikjöt, súr hákarl, hrútspungar, sviðasulta, súrt slátur, harðfiskur og fleira góðgæti.
Ilmurinn úr skólaeldhúsinu lá yfir göngum langt fram eftir degi - og þó flestir nemendur hafi verið áhugasamir að prófa súrmatinn sló bragðið ekki beinlínis í gegn hjá öllum.