Þjónustumiðstöð leitar að húsnæði

Velferð

""

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða leitar nú að nýju húsnæði fyrir starfsemi sína. Húsnæðið þarf að vera mjög aðgengilegt fyrir notendur þjónustunnar,  staðsett nálægt mótum hverfanna  og liggja vel við almenningssamgöngum.



Við inngang þarf að vera möguleiki á þjónustuskála ca. 140 - 160 ferm. með möguleika á 5 - 8 starfsstöðvum, biðstofu og kynningarsal.  Húsnæði á einnig að vera þægilegt fyrir starfsmenn og skapa möguleika fyrir jákvætt vinnuumhverfi og trausta meðferð gagna og upplýsinga. Þjónustumiðstöðin þarf 1.100 - 1.200 fermetrar fyrir starfsemi sína, en heildarfjöldi starfsstöðva er 45 - 50.



Leitað er að húsnæði sem er fullbúið til notkunar, en án lauss búnaðar og er æskilegt að það sé tilbúið til afhendingar eigi síðar en 1. september 2013.  Þeir sem vilja leigja Reykjavíkurborg verða að leggja inn tilboð fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 16. maí 2013. Gert er ráð fyrir 5 ára leigutíma með möguleika á framlengingu.



,,Starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar er fjölbreytt og fjölsótt," segir Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvarinnar. ,,Hingað koma margir á hverjum degi og því mikilvægt að finna henni góðan stað.  Hlutverk þjónustumiðstöðvarinnar er að veita þverfaglega og samræmda þjónustu til íbúa í Miðborg og Hlíðum um persónuleg málefni, ráðgjöf við starfsfólk leik- og grunnskóla, barna og foreldra þeirra og aðra faglega þjónustu til stofnana og félagasamtaka í hverfunum. Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í fjölmenningu og margbreytileika og hefur á að skipa starfsfólki, sem er sérhæft í málefnum útlendinga og minnihlutahópa. Tengsl og samstarf við íbúa, grasrótarsamtök, íbúasamtök og starfsemi í hverfunum er mikilvægt í starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar“.