Forsvarsmenn skóla- og frístundamála í Vesturbæ komu saman í dag til að ræða um málefni hverfisins. Á nýju skóla- og frístundasviði er lögð rík áhersla á að þeir sem starfa í uppeldisumhverfi barna og unglinga vinni saman.
Vesturbæjarfléttan varð til haustið 2011 og er hugsuð sem vettvangur starfsmanna til að mynda tengsl og flétta betur saman fagstarf og starfseiningar. Haustið 2012 var haldinn sameiginlegur starfsdagur fyrir alla starfsmenn sem starfa á skóla- og frírstundasviði í Vesturbæ.
Mikil ánægja var með daginn.
Á fundinum í morgun var meðal annars rætt um að halda sambærilega starfsdag haustið 2013, um barnamenningarhátíð, þörf á útikennslusvæði fyrir Vesturbæ og lögð drög að samræmdu skóladagatal fyrir hverfið.