„Fólk var mjög jákvætt gagnvart því að fá ábendingu um að flokka umbúðir úr pappír frá öðru rusli,“ sagði Íris Magnúsdóttir starfsmaður Reykjavíkurborgar sem brá sér í verslanir í Árbænum með límmiðavél og merkti vörur með miðanum: „Þessar umbúðir eru ekki rusl“.
Flestallar matvöruverslanir í Reykjavík hafa gefið starfsfólki Reykjavíkurborgar leyfi til að merkja með límmiðum t.d. morgunkornkassa, kexkassa, fernur, eggjabakka og aðrar vörur með umbúðir úr pappír. Þetta er þáttur í kynningarátaki borgarinnar á bláum tunnum og endurvinnslu eða að nú beri að flokka allan pappír frá. Vörur verða einnig merktar á næstunni í verslunum í Grafarvogi og Breiðholti.
„Við höfum flokkað fernur og dagblöð í mörg ár en áttuðum okkur ekki fyrr en nýlega að við gætum einnig flokkað karton með þeim í bláu tunnuna,“ sögðu hjón sem voru ánægð með nýju merkingarnar.
Pappír er ekki rusl í Reykjavík og er því aðskilinn frá sorpi. Sorphirða Reykjavíkur býður borgarbúum upp á tvær leiðir til að flokka pappír. Annars vegar með því að panta bláa tunnu heim við hús eða fara með efnið í grenndargáma í nágrenninu.
Íbúar í Grafarvogi, Árbæ og Norðlingaholti hættu alfarið að henda pappír í janúar og nú munu Breiðhyltingar gera það sama í febrúar.
Flokkun á pappír felur í sér möguleika á lægri sorphirðugjöldum. Heimili sem skiptir út grárri tunnu fyrir bláa sparar 12.100 kr. árlega. Blá tunna kostar 6.500 kr. á ári en grá undir blandaðan úrgang 18.600 kr.
Tenglar:
Lausnir fyrir heimili.