Þátttökubekkur í Árbæjarskóla

Skóli og frístund

""

Svonefndur þátttökubekkur frá Klettaskóla hefur formlega verið opnaður í húsakynnum Árbæjarskóla.

Þátttökubekkur er eins konar brú milli almenns grunnskóla og sérskóla, og tilheyra nemendur bekkjarins og starfsfólk hans sérskólanum, en taka eins og kostur er þátt í skólastarfi almenna skólans. Starfsmenn eru tveir, og nemendur fjórir þessar fyrstu vikur starfseminnar.

Þátttökubekkurinn frá Klettaskóla býr við ágætan aðbúnað í Árbæjarskóla í stórri og bjartri kennslustofu þar sem vítt er til veggja. Tækjabúnaður kemur frá Klettaskóla, svo sem tölvur og Smart- tafla. Opnun þátttökubekkjarins var fagnað með kynningu á starfsemi hans, og mættu á fjórða tug gesta.