Þátttakendur óskast - viltu vera með?

Velferð

""

Farsæl öldrun - Framtíðarþing um farsæla öldrun 7. mars næstkomandi. Framtíðarþing um farsæla öldrun Markmið þingsins er að skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál, væntingar og viðhorf til efri áranna og vekja jákvæða athygli á eldri borgurum, stöðu þeirra og hvernig þeir líta á sín mál til framtíðar.

 

Óskað er eftir þátttakendum úr eftirfarandi hópum:

75 ára og eldri

55-75 ára

55 ára og yngri

Starfsfólk sem tengist öldrunarmálum

 

Áhugasamir vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið framtidarthing@gmail.com eða í síma 693 9508 eigi síðar en 25. febrúar nk. Taka þarf fram nafn, kennitölu og síma.

 

Þátttaka er öllum heimil og án endurgjalds. Boðið verður upp á veitingar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þingið er í Tjarnarsal 7. mars 2013 kl. 16.30 - 20.30

 

Markmið þingsins er að skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál, væntingar og viðhorf til efri áranna.

Og vekja jákvæða athygli á eldri borgurum, stöðu þeirra og hvernig þeir líta á mál sín til framtíðar.