Teikningar aðgengilegar á vef

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Sá merki áfangi að gera aðaluppdrætti bygginga í Reykjavík aðgengilega á vef hefur nú náðst.  Vinnan hefur staðið yfir í nokkur ár enda ekkert áhlaupavert að skanna og skrá með leitarorðum 130 þúsund teikningar.

Þeir sem þurfa teikningar geta nú farið inn á vefinn teikningar.reykjavik.is í stað þess að sækja afrit uppdrátta í afgreiðslu byggingarfulltrúa.  Sá möguleiki verður þó að sjálfsögðu enn í boði hjá Þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 - 14 og þar má fá teikningar í fullri stærð.  Teikningaafgreiðsla er opin virka daga frá kl. 8.20 - 16.00 og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið thjonustuver@reykjavik.is

Nýir samþykktir aðaluppdrættir eru skannaðir og settir inn í kerfið innan mánaðar frá afgreiðslu byggingarleyfisumsókna.  Þó teikningasafnið á vefnum nái til flestra bygginga í Reykjavík eru nokkrar undantekningar þar á af öryggisástæðum s.s. sendiráð erlendra ríkja og byggingar alþingis. Hver og einn eigandi húss getur óskað eftir því að grunnmyndar teikning húss hans sé fjarlægð úr gagnagrunninum, en það heyrir til undantekninga að slíkar beiðnir berist. Slíkar umsóknir eða aðrar fyrirspurnir um teikningar skulu berast byggingarfulltrúa Reykjavíkur að Borgartúni 12 - 14, eða netfang embættisins byggingarfulltrui@reykjavik.is. 

Skoða teikningavef >  teikningar.reykjavik.is.