Tafir á sorphirðu
Ekki reyndist unnt að sinna sorphirðu í Vesturbæ Reykjavíkur í dag eins og til stóð, 6. mars sökum ófærðar og hindrana í húsagötum. Ekki er heldur hægt að klára verkefnin í Grafarvogi af sömu ástæðum. Hafist verður handa við að losa sorptunnur strax í fyrramálið ef veður og aðstæður leyfa.
Sorphirða Reykjavíkur biður íbúa í Vesturbæ og Grafarvogi vinsamlega að moka frá sorpgeymslum og tunnum í kvöld til að greiða fyrir sorphirðu sem nú er einum degi á eftir áætlun.
Mikið álag er á sorphirðufólki þegar færð og aðstæður eru slæmar eins og í veðuráhlaupinu í dag. Sorphirðan getur í einstaka tilfellum neyðst til að skilja tunnur eftir ólosaðar ef aðgengið er of erfitt.
Sorphirðufólk mun sennilega vera að störfum næsta laugardag til að vinna upp tímatapið.