Hönnunarsamkeppni um uppbyggingu þjónustumannvirkja fyrir Grafarholt og Úlfarsárdal var samþykkt á síðasta fundi borgarráðs. Til grundvallar liggja hugmyndir um samþættan leik- og grunnskóla og frístundastarf í Úlfarsárdal. Sundlaug með útisvæði og heitum pottum verður opin almenningi en jafnframt verður lítil innilaug sem hentar til æfinga, kennslu og ungbarnasunds. Auk uppbyggingar á íþróttasvæði verður byggt nýtt íþróttahús til æfinga og keppni með áhorfendaaðstöðu. Í hönnunarsamkeppni um þessi mannvirki er einnig gert ráð fyrir rými fyrir menningarstarfsemi sem hluta af heildarþjónustunni með góðar tengingar við aðra starfsemi.
Samstarf íbúa, Fram og Reykjavíkurborgar
Starfshópur íbúasamtaka bæði í Úlfarsárdal og Grafarholti, Knattspyrnufélagsins Fram og Reykjavíkurborgar hefur starfað frá áramótum og skilað af sér ítarlegri skýrslu til borgarráðs. Gengið er út frá tveggja þrepa hönnunarsamkeppni og á fyrra þrepi hennar hafi keppendur til umráða allan byggingareitinn austan og vestan íþróttahúss eins og sýnt er í uppdráttum deiliskipulagshöfunda. Áhersla er lögð á að byggingarnar, að frátöldum skóla, þjóni íbúum bæði Úlfarsárdals og Grafarholt. Fyrirhuguð staðsetning íþróttahúss er óbreytt og gervigrasvöllur, keppnisvöllur og æfingavellir verða á sínum stað.
Gert er ráð fyrir samnýtingu húsnæðis og þannig muni skólinn ekki þurfa sérstakan íþróttasal heldur nota aðstöðu Fram. Hagkvæmni í rekstri mannvirkjanna vegna samtengingar þeirra verði skoðuð sérstaklega. Á seinna þrepi keppninnar velur dómnefnd tillögur til frekari útfærslu.
Borgin vill byggja upp í Úlfarsárdal
Samþykktir borgarstjórnar gera ráð fyrir um 3,7 milljörðum króna til uppbyggingar í Úlfarsárdal á næstu fimm árum. Við undirbúning og samþykkt fjárfestingaáætlunar var gert ráð fyrir að ná fram samlegðaráhrifum í fyrirhugðum byggingum og spara fermetra og rekstrarkostnað mannvirkja
Á fundi sínum fól borgarráð umhverfis- og skipulagssviði í samstarfi við skrifstofu eigna og atvinnuþróunar að leggja drög að forsögn og undirbúa tveggja þrepa hönnunarsamkeppni um uppbyggingu þjónustumannvirkja fyrir Úlfarsárdal og Grafarholt. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að endurskoðun deiliskipulags hverfisins.
Tengt efni:
• Skýrsla starfshóps í aðdraganda hönnunarsamkeppni um samþættan leik- og grunnskóla og frístundastarf í Úlfarsárdal, menningarmiðstöð og almenningsbókasafn, kennslu- og almenningssundlaug og íþróttahús í Úlfarsárdal; Reykjavík, júní 2013
• Frétt: Íbúar áhugasamir um uppbyggingu í Úlfarsárdal
• Lóðir í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási til sölu
• Frétt: Nýir lóðaskilmálar í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási