Sumarstörf hjá Reykjavíkurborg 2013
Opnað verður fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Reykjavíkurborg föstudaginn 1. mars. Allir þeir sem fæddir eru árið 1996 og fyrr og eiga lögheimili í Reykjavík geta sótt um störfin. Um er að ræða fjölbreytt sumar- og afleysingastörf hjá Reykjavíkurborg. Tekið er við umsóknum til miðnættis 2. apríl.
Sótt er um á netinu á síðu Reykjavíkurborgar, http://reykjavik.is/laus-storf. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um störfin.
Ef umsækjendur hafa ekki aðgang að netinu eru þeir velkomnir í Hitt Húsið í Pósthússtræti 3 - 5 til að nýta sér tölvur sem þar eru. Starfsfólk Hins hússins aðstoðar þá umsækjendur sem þess þurfa.
Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11 og Hitt húsið í síma 411 5500 en einnig er hægt að senda póst á netfangið sumarstorf@reykjavik.is og óska eftir upplýsingum.