ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Sumarliðar fyrir sumarið 2013
Líkt og undanfarin ár geta íþrótta- og æskulýðsfélög í Reykjavík sótt um að fá sumarliða til starfa með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum fyrir ungt fólk í Reykjavík.
Þau félög sem áhuga hafa á að sækja um að fá ungt fólk til starfa á launum frá Reykjavíkurborg eru vinsamlegast beðin um að senda póst á netfangið sumarstorf@reykjavik.is til nánari upplýsinga.
Við úthlutun verður m.a. horft til umfangs verkefnis, mögulegra samfélagslegra áhrifa og annara afleiddra starfa sem skapast gætu.